Sérsýningar
Sérsýningar í apríl eru fjölbreyttar og skemmtilegar.
18. apríl 2013
Bíó Paradís og Lucky Records, í samvinnu við Pilsner Urquell, kynna Last Shop Standing: The Rise, Fall and Rebirth of the Independent Record Shop, geggjaða heimildamynd um vöxt, hnignun og upprisu óháðra plötubúða í Bretlandi. Sýnd fimmtudagskvöldið 18. apríl kl. 20:00. Aðeins þessi eina sýning!
20. apríl 2013
Græni Herinn sýnir heimildamynd um sögulegt tímabil Völsungs er meistaraflokkur karla sigraði 2.deild í knattspyrnu árið 2012. Myndin Leiðin að titlinum verður sýnd í Bíó Paradís, laugardaginn 20.apríl kl.20.00.
22. apríl 2013
Í tilefni af Degi jarðar hinn 22. apríl bjóða Náttúruverndarsamtök Íslands og Vísindafélag Íslands, í samstarfi við Breska sendiráðið,
til frumsýningar á kvikmyndinni ”Thin Ice”. Sýningin hefst kl. 19:30 í Bíó Paradís á Degi jarðar, mánudaginn 22. apríl. Frítt er inn á sýninguna // Free entrance!
23. apríl 2013
Baráttukonan Kasha Jacqueline í Bíó Paradís – Sýning á kvikmyndinni Call me Kuchu Þriðjudaginn 23. apríl klukkan 20:00
Bíó Paradís stendur fyrir ýmiskonar sérsýningum á nýjum og sígildum kvikmyndum fyrir mismunandi hópa.
Opin kennslustund Kvikmyndaskóla Íslands
Kvikmyndaskóli Íslands stendur fyrir svokallaðri “opinni kennslustund” vikulega yfir vetrarmánuðina þar sem allir nemendur og kennarar skólans munu horfa á sígildar myndir kvikmyndasögunnar. Á undan hverri sýningu verður stutt innleiðing frá mismunandi umsjónarmönnum og eftir sýningu verða umræður um myndina. Hugmyndin er að almenningi verði einnig frjáls aðgangur. Sýningarnar erukl. 13 á föstudögum, 10 skipti á hverri önn.
Svartir sunnudagar
Þeir Hugleikur Dagsson, Páll Óskar Hjálmtýsson og Sigurjónarnir tveir, Kjartansson og Sigurðsson (Sjón) hafa stofnað cult og klassík hópinn Svarta sunnudaga, sem stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum í Bíó Paradís á sunnudagskvöldum yfir vetrarmánuðina. Fyrir þeim félögum vakir að auðga bíómenningu borgarinnar og njóta lífsgæðanna sem felast í því að klassískar cult myndir séu sýndar í reykvískum bíósal a.m.k. einu sinni í viku. Eftir mikla rekistefnu ákváðu þeir þremenningar að sunnudagskvöld væru bestu kvöldin fyrir svona nokkuð, enda hafa sunnudagskvöld fest sig í sessi í bíómenningu okkar sem aðal-bíókvöldin. Auk þess hefði verið kjánalegt að vera með sýningar t.d. á þriðjudögum undir nafninu Svartir sunnudagar.
Ýmislegt annað
Margskonar aðrar sérsýningar fara fram í Bíó Paradís og er þar gjarnan um að ræða ýmsa hópa og félagasamtök sem sýna myndir úr ýmsum áttum. Upplýsingar um slíkar myndir er að finna í dagskránni hverju sinni.






