Íslandsfrumsýning – BIRTA

Þér er boðið á frumsýningu á kvikmyndinni Birtu í leikstjórn Braga Þórs Hinrikssonar á Alþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík 2021 fimmtudaginn 4. nóvember kl. 19:00 í Bíó Paradís. Frítt inn og allir velkomnir!

Nauðsynlegt er að skrá sig hér.

Hin kraftmikla en auðtrúa Birta tekur málin í sínar eigin hendur með ævintýralegum hætti þegar hún heyrir móður sína segja í hálfkæringi að það verði engin jól vegna blankheita.

Í tilefni af ÍSLANDSFRUMSÝNINGU myndarinnar ætlum við að rúlla út rauða dreglinum og bjóðum öllum krökkum að koma og upplifa alvöru kvikmyndafrumsýningu! Forsetafrúin, Eliza Reid, mun vera viðstödd sýninguna ásamt því að KrakkaRÚV verður á staðnum.

Hátíðin verður haldin í áttunda sinn dagana 28. okt. – 7. nóv. 2021 í Bíó Paradís!