Bíó Paradís, í samstarfi við Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, halda upp á Evrópska kvikmyndaverðlaunatímabilið í aðdraganda Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2027.
Fram undan er fjölbreytt og spennandi dagskrá þar sem listrænn metnaður, sterkar sögur og einstakur sköpunarkraftur evrópskrar kvikmyndagerðar fá að njóta sín á hvíta tjaldinu.
Verðlaunatímabilið hefst í nóvember þegar tilnefningar til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna verða kynntar en það nær hámarki með verðlaunaafhendingunni 16. janúar 2027.
Opnunarmynd Evrópska verðlaunatímabilsins er Ástkær (The Beloved) í leikstjórn Rodrigo Sorogoyen (The Beasts).
Óskarsverðlaunahafinn Javier Bardem fer með hlutverk kvikmyndaleikstjóra sem býður dóttur sinni að leika í nýjustu mynd sinni. Á tökustað tekur við náin samvera sem rifjar upp gömul sár.
Komdu og fagnaðu evrópskri kvikmyndagerð í Bíó Paradís!
Dagskrá:
Paradís: Kvöldstund með… Esben Smed
Frumsýnd 19. nóvember
2026 | Danmörk, Noregur
European Arthouse Cinema Day
22. nóvember
2026 | Þýskaland, Úkraína
2025 | Frakkland
Frumsýnd 26. nóvember
2026 | Frakkland, Þýskaland, Lettland
European Cinema Night – La Bola Negra
2. desember
2026 | Frakkland, Spánn
Frumsýnd 7. janúar 2027
2026 | Austurríki, Þýskaland, Frakkland
Frumsýnd 7. janúar 2027
2026 | Danmörk
Nánar um Evrópska verðlaunatímabilið hér:
Bíó Paradís er meðlimur í CICAE og Europa Cinemas.
Skoða fleiri fréttir