Miðvikudagsbíó í Paradís!

Bíó Paradís býður upp á bíó í björtu alla miðvikudaga kl 14:00. Tilvalið fyrir eldra fólk, fólk sem vinnur á kvöldin og alla þá sem þrá að fara í bíó að degi til! 🎬⭐️

Heitt á könnunni og bakkelsi í boði 280 bakarí á meðan birgðir endast.

Markmiðið með miðvikudagsbíóinu er að rjúfa félagslega einangrun og skapa andrúmsloft þar sem fólk getur komið saman og notið góðra kvikmynda í huggulegu umhverfi. Hvers kyns hópar og félagsstarf sérstaklega velkomnir! ☕️

Aðgengi í Bíó Paradís er nú til fyrirmyndar. Við erum með ramp inn í sal 1, lyftu inn í sal 2 og 3.  Hjólastólastæði í öllum sölum og salerni fyrir hreyfihamlaða.

Bíó Paradís býður 25% afslátt fyrir nema, öryrkja og eldri borgara.🎟️

Vinsamlega athugið að afslátturinn fæst í miðasölu á staðnum en ekki á vefnum.

Skráðu þig á póstlista og fáðu upplýsingar um dagskrá og sérstaka viðburði senda beint til þín!