Mánudaginn 2. febrúar fór Best of Reykjavík viðburðurinn fram í Gamla Bíó á vegum The Reykjavík Grapevine í samstarfi við Teya.
Viðburðurinn var haldinn annað árið í röð þar sem fyrirtækjum og rekstraraðilum í Reykjavík var fagnað, ásamt því að veitt voru verðlaun í sérstökum flokkum til þeirra sem talin eru skara fram úr.
Bíó Paradís hlaut verðlaun í flokki Best of the Best, en í þeim flokki kjósa jafningjar og aðrir sigurvegarar um þann besta úr hópnum. Hlutu þau eina milljón í verðlaunafé frá Teya ásamt viku af auglýsingabirtingum á Keflavíkurflugvelli að verðmæti einnar milljón króna frá Mastercard.
Einnig fékk kvikmyndahúsið verðlaun fyrir Best Cinema ásamt því að vera tilnefnt tveimur öðrum flokkum.
Bíó Paradís þakkar The Reykjavík Grapevine fyrir viðurkenninguna, við erum einstaklega þakklát fyrir það að hafa verið valin af ykkur öllum! Sérstakar þakkir til Teya Ísland fyrir stuðninginn!
ÁFRAM BÍÓ PARADÍS!
