Stockfish snýr aftur með handvalið úrval kvikmynda sem fara aðeins út fyrir þægindarammann – alþjóðlegar verðlaunakvikmyndir, nýjar raddir í kvikmyndagerð og óvæntar perlur sem rata sjaldan á hvíta tjaldið.
Þessi glæsilega kvikmyndahátíð verður haldin í tólfta sinn dagana 19. – 29. mars 2026 í Bíó Paradís.