Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum

Sýningatímar

Engar sýningar

Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Tegund: Heimildamynd/Documentary
  • Leikstjóri: Alma Ómarsdóttir
  • Ár: 2015
  • Lengd: 65 mín
  • Land: Ísland
  • Frumsýnd: 8. Október 2015

Skömmu eftir hernámið í seinni heimsstyrjöldinni fór allt á annan endann í íslensku samfélagi vegna samskipta kvenna við setuliðið. „Ástandsstúlkur“ voru fordæmdar í dagblöðum og ráðamenn þjóðarinnar töluðu um að lauslæti og skækjulifnaður ógnaði íslensku þjóðerni og þjóðarsóma. Í kjölfarið var gripið til fordæmalausra mannréttindabrota; sjálfræðis- og frlesissviptinga ungra kvenna undir yfirskyni björgunar. Heimildamyndin Stúlkurnar á Kleppjárnsreykjum: Lauslæti og landráð sviptir hulunni af myrkum kafla sögunnar sem hefur legið í þagnargildi í áratugi.

ATH vegna fjölda áskorana þá höfum við bætt við aukasýningum út næstu viku á myndinni. Hægt er að sjá sýningartíma og kaupa miða hér: 

Myndataka: Ingi R. Ingason

Tónlist: Karl Olgeirsson

Hljóðsetning: Hrafnkell Sigurðsson

Aðrar myndir í sýningu