Jóhanna – Síðasta orrustan

Sýningatímar

Engar sýningar

Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Tegund: Heimildamynd/Documentary
  • Leikstjóri: Björn B Björnsson
  • Ár: 2015
  • Lengd: 90 mín
  • Land: Ísland
  • Frumsýnd: 15. Október 2015
  • Tungumál: Íslenska

Í myndinni er fylgst með störfum Jóhönnu og því sem gerist bak við tjöldin í Stjórnarráðinu. Kastljósinu er einkum beint að baráttu hennar og annarra fyrir því að fá Alþingi til að samþykkja nýja stjórnarskrá Íslands.

Myndin hefst á landsfundi Samfylkingarinnar þegar Árni Páll Árnason tekur við af Jóhönnu sem formaður flokksins.

Árn Páll boðar ný vinnubrögð og lætur af þeirri stefnu Jóhönnu að reyna að knýja stjórnarskrána í gegnum þingið og vill þess í stað skapa þverpólitíska samstöðu um að fresta hluta hennar til næsta kjörtímabils.

Þessi stefna veldur miklum ágreiningi við þá sem vilja klára málið, jafnt innan Samfylkingarinnar og utan. Í kjölfarið verða mikil átök á þingi og í bakherbergjum um stjórnarskrármálið – og engin leið að vita hvaða endi það muni fá.

Þetta er í fyrsta skipti sem heimildarmynd af þessari tegund er gerð hér á landi, þegar fylgst er með stjónmálamanni í valdastöðu og öllum þeim vendingum sem verða í meðferð þingsins á mikilvægu máli – eins og stjórnarskrá Íslands.

Leikstjóri myndarinnar er Björn B. Björnsson og er hann jafnframt handritshöfundur ásamt Elísabetu Ronaldsdóttur, sem klippir myndina. Kvikmyndatöku annaðist Jón Karl Helgason og tónlistin í myndinni er eftir Tryggva M. Baldvinsson. Framleiðandi er Reykjavík films.

Aðrar myndir í sýningu