Með allt á hreinu – singalong!

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Gamanmynd, Söngleikur/Musical
  • Leikstjóri: Ágúst Guðmundsson
  • Handritshöfundur: Ágúst Guðmundsson, Eggert Þorleifsson, Stuðmenn
  • Ár: 1982
  • Lengd: 100 mín
  • Land: Ísland
  • Frumsýnd: 12. Maí 2023
  • Tungumál: Íslenska
  • Aðalhlutverk: Eggert Þorleifsson, Ragnhildur Gísladóttir, Valgeir Guðjónsson, Tómas M. Tómasson, Egill Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon

Bíó Paradís ætlar að bjóða upp á sýningu á MEÐ ALLT Á HREINU endurnýjaða, hljóð -og myndbætta útgáfu með sérstökum fjöldasöngstextum sem birtast í sönglögum myndarinnar. Sing-along sýning í Paradís á þessari ástsælustu kvikmynd Íslandssögunnar sem dró 120.000 manns í bíó á fyrsta sýningarári.

Tónlistar- og grínmyndin Með allt á hreinu fjallar um tvær hljómsveitir, Stuðmenn og Gærurnar (réttu nafni Grýlurnar), ástir og afbrýði meðlima þeirra og spaugilegar uppákomur í ferðalagi þeirra um Ísland. Söngtextar birtast með öllum lögum myndarinnar.

Ekki missa af sankallaðri söngveislu í Bíó Paradís föstudaginn 12. maí kl 21:00!

Aðrar myndir í sýningu