Mömmubíó í Bíó Paradís – Svanurinn

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Drama
  • Leikstjóri: Ása Helga Hjörleifsdótir
  • Ár: 2017
  • Lengd: 95 mín
  • Land: Ísland
  • Frumsýnd: 3. Febrúar 2018
  • Tungumál: Íslenska með enskum texta
  • Aðalhlutverk: Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson & Gríma Valdsóttir

Nú er komið að þessu! Við ætlum að bjóða upp á mömmubíó (og ef þú ert pabbi í fæðingarorlofi þá ertu velkominn líka!) laugardaginn 3. febrúar kl 14:00! Ljósin verða hálf-slökkt svo að það verður huggulegt andrúmsloft fyrir börn og mömmur (og/eða pabba)!

Svanurinn segir frá afvegaleiddri níu ára stúlku sem er send í sveit um sumar til að vinna og þroskast, en verður í staðinn lykilþátttakandi í atburðarás sem hún skilur varla sjálf.

Myndin hefur farið sigurför á Alþjóðlegum kvikmyndahátíðum, var heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto haustið 2017, var valin besta kvikmyndin á Kvikmyndahátíðinni í Kaíró auk þess sem Ása Helga vann verðlaun fyrir leikstjórn á Kolkata International Film Festival á Indlandi.

English

A wayward nine-year-old girl is sent to the countryside to work and mature, but finds herself instead deeply entangled in a drama she can hardly grasp.

Aðrar myndir í sýningu