Rithöfundarnir Ólafur Gunnarsson og Einar Kárason héldu í ferð þvert yfir Ameríku á 1960 árgerð af Kadiljálki, ásamt útgefandanum Jóhanni Páli Valdimarssyni og kadda-sérfræðingnum Steina í Svissinum. Ferðin varð þeim að innblæstri samnefndar bókar sem kom út haustið 2006. Það gekk á ýmsu á leiðinni og hafði útgefandinn á orði að hann hyggðist gefa sjálfur út bók að ferð lokinni, sem fjallaði um hvernig lifa skuli af slíka helreið með fjórum geðsjúklingum og yrði notuð við kennslu í geðhjúkrunarfræði í skólum landsins.