Úti að aka – Á reykspúandi kadilakk yfir Ameríku

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Heimildamynd/Documentary
  • Leikstjóri: Sveinn Magnús Sveinsson
  • Ár: 2016
  • Lengd: 60 mín
  • Land: Ísland
  • Frumsýnd: 27. Maí 2016

Rithöfundarnir Ólafur Gunnarsson og Einar Kárason héldu í ferð þvert yfir Ameríku á 1960 árgerð af Kadiljálki, ásamt útgefandanum Jóhanni Páli Valdimarssyni og kadda-sérfræðingnum Steina í Svissinum. Ferðin varð þeim að innblæstri samnefndar bókar sem kom út haustið 2006. Það gekk á ýmsu á leiðinni og hafði útgefandinn á orði að hann hyggðist gefa sjálfur út bók að ferð lokinni, sem fjallaði um hvernig lifa skuli af slíka helreið með fjórum geðsjúklingum og yrði notuð við  kennslu í geðhjúkrunarfræði í skólum landsins.

 

Aðrar myndir í sýningu