Barnakvikmyndahátíð 2024

Lói - Þú flýgur aldrei einn

Lói – Þú flýgur aldrei einn er frábær íslensk fjölskyldumynd.

Lói er ófleygur þegar haustið kemur og farfuglarnir fljúga suður á bóginn. Hann þarf að lifa af harðan veturinn og kljást við grimma óvini til að eiga möguleika á að sameinast aftur ástvinum sínum að vori.

Friðrik Erlingsson skrifar handrit myndarinnar og Árni Ólafur Ásgeirsson leikstýrir, ásamt Gunnari Karlssyni sem jafnframt er höfundur útlits og persóna. Hilmar Sigurðsson og Haukur Sigurjónsson eru framleiðendur myndarinnar, auk Ives Agemans hjá Cyborn í Belg­íu.

Tónlistin er svo í höndum Atla Örvarssonar og er umfangsmesta tónlistarverkefni sem ráðist hefur verið í fyrir kvikmynd hér á landi.

Sýnd á Aþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð sunnudaginn 3. nóvember kl 15:00 í Bíó Paradís!


Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Frumsýnd: 26. Október 2024
  • Leikstjórn: Árni Ólafur Ásgeirsson
  • Handrit: Friðrik Erlingsson
  • Aðalhlutverk: Hilmir Snær Guðnason, Jóhann Sigurðarson, Thorunn Erna Clausen, Ólafur S.K. Þorvaldz, Matthías Davíô Matthíasson, Rakel Björgvinsdóttir, Arnar Jónsson
  • Lengd: 85 mín
  • Tungumál: Íslenska
  • Texti:
  • Tegund:Animation, Family
  • Framleiðsluár: 2018
  • Upprunaland: Belgía, Ísland