Bíótekið – Kvikmyndasafn Íslands og Bíó Paradís

Tár úr steini

Kvikmyndin gerist í Þýskalandi á þriðja áratug  20 aldar.

Jón Leifs á bjarta framtíð fyrir sér sem tónskáld þegar hann verður ástfanginn af gyðingastúlkunni Annie Riethof, sem er eftirsóttur píanóleikari. Þau giftast og setjast að í Berlín.

Draumur Jóns um frægð og frama snýst brátt upp í baráttu upp á líf og dauða, í landi sem er óðum að breytast í helvíti á jörð. Ást hans á tónlistinni togast á við ástina á Annie og dætrunum sem eiga yfir höfði sér ofsóknir nasista.

Þessi kvikmynd Hilmars Oddssonar hlaut mikið lof fyrir fagurfræði og tónlist þegar hún kom fyrst út, auk þess að ferðast víða um heim á alþjóðlegar kvikmyndahátíðir. Jóna Finnsdóttir framleiddi myndina.  

Sýnd í Bíótekinu sunnudaginn 23. nóvember kl 17:00. 

Sýningatímar

  • Sun 23.Nóv

Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Leikstjórn: Hilmar Oddsson
  • Handrit: Hilmar Oddsson, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Hjálmar Helgi Ragnarsson
  • Aðalhlutverk: Þröstur Leó Gunnarsson, Jóhann Sigurðarson, Rut Ólafsdóttir, Bergþóra Aradóttir, Sigrún Lilliendal
  • Lengd: 114 mín
  • Tungumál: Íslenska, Þýska
  • Texti:
  • Tegund:Drama
  • Framleiðsluár: 1995
  • Upprunaland: Þýskaland, Ísland