Skólasýningar
KVIKMYNDAFRÆÐSLA FYRIR BÖRN OG UNGLINGA
Bíó Paradís stendur fyrir kvikmyndafræðslu fyrir börn og unglinga sex vikur í senn á hvorri önn skólaársins. Sýningar eru á fimmtudögum kl. 10:30 (fyrir börn) og kl. 13:00 (fyrir unglinga).
Verkefnisstjóri er Oddný Sen, kvikmyndafræðingur.
Tilgangurinn með sýningunum er að veita börnum og unglingum möguleika á að kynnast kvikmyndum sem hafa alþjóðlega gæðastimpla, eru ýmist klassískar perlum frá öllum skeiðum kvikmyndasögunnar og eru lykilkvikmyndir sem hafa skapað sér sess innan kvikmyndasögunnar. Þannig verða sýndar myndir frá Bandaríkjunum, Evrópu, Norðurlöndum, Austurlöndum, Íslandi og öllum heimsins hornum. Á undan hverri sýningu er haldinn fyrirlestur til að auðvelda áhorfendum að greina kvikmyndina ásamt hugmyndum að ritgerðum og umsögnum barnanna um kvikmyndirnar.
Leitast verður við að skoða margvísleg temu eins og unglingsárin, tengsl nútíma kvikmynda við kvikmyndasöguna, úrvinnslu tilfinninga, félagsleg tengsl, samfélagsleg tengsl, einelti, listsköpun, sjónarhorn og uppsetningu svo fátt eitt sé nefnt.
Þessar skólasýningar hófust veturinn 2011-2012 í samvinnu við fræðsluyfirvöld og skóla. Þær eru í gangi í október-nóvember og febrúar-mars ár hvert.





