KVIKMYNDAVERÐLAUN NORÐURLANDARÁÐS 2025 // NORDIC COUNCIL FILM PRIZE 2025
Í tengslum við kvikmyndaverðlaunin stendur Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn (Nordisk Film & TV Fond) fyrir sýningum á tilnefndum myndum í samstarfi við kvikmyndahús á Norðurlöndunum.
Af því tilefni mun Bíó Paradís sýna allar tilnefndar kvikmyndirnar og bjóða upp á Norræna kvikmyndaveislu dagana 18. – 22. september 2025.
Dagskrá fyrir hinar sjö tilnefndu kvikmyndir til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2025 má sjá hér að neðan – allar myndir verða sýndar með enskum texta!