Fréttir

Heimildamyndin “Að sjá hið ósýnilega” í almennar sýningar í Bíó Paradís

16/04/2019

Heimildamyndin “Að sjá hið ósýnilega” eftir Bjarney Lúðvíksdóttur og Kristján Kristjánsson var frumsýnd þann 9. apríl síðastliðinn í Bíó Paradís við miklar undirtektir áhorfenda. Uppselt hefur verið á hverja einustu sýningu sem skipulagðar voru af hálfu Einhverfusamtakanna, en aðeins eru örfáir miðar eftir á þær sýningar.

Bíó Paradís hefur brugðist við með því að bæta við sýningum um páskahelgina á myndinni, sem einnig verður sýnd í almennum sýningum í Bíó Paradís næstu daga. Miða á sýningarnar má nálgast hér.

Heimildamyndin hefur vakið gífurleg viðbrögð úr samfélaginu og varpar ljósi á málefni sem mjög sjaldan hefur verið fjallað um áður. Sumir ganga jafnvel svo langt að segja að myndin muni hljóta heimsathygli vegna umfjöllunarefnisins sem einhverfa kvenna er – og hefur ekki verið fjallað um áður á þennan hátt.

Nánar um myndina:

Hvers vegna leggjum við sérstaka áherslu á stúlkur og konur á einhverfurófi? Þær finnast oft ekki fyrr en á geðdeild, í kulnun, fastar í grófri kynferðislegri misnotkun og hársbreidd frá sjálfsvígi. Algengt er að stúlkur og konur feli einhverfueinkenni sín en því fylgir mikið álag og vanlíðan. Oft enda þær með hlaðborð af greiningum og aukaverkunum sem þær eiga erfitt með að sætta sig við. Svörin liggja ekki þar.

Úr myndinni: „Hvað eru margar konur á örorkubótum í dag!? Hvers vegna eru þessar konur á örorkubótum!? Hvers vegna eru svona margar konur með vefjagigt!? Hvers vegna er svona erfitt að vera til!? þetta þarf ekki að vera svona, er enginn í kerfinu að spyrja sig þessara spurninga? Þetta er kerfislægur vandi.“Konur á einhverfurófi fá greiningu seint og það hefur neikvæð og alvarleg áhrif á líðan þeirra, heilsu og tækifæri til þátttöku. Heimildarmyndin „Að sjá hið ósýnilega“ varpar ljósi á líf og reynslu einhverfra kvenna og markmiðið með henni er að vekja athygli á stöðu þeirra, vinna gegn fordómum og stuðla að jákvæðum viðhorfum í samfélaginu.

Skoða fleiri fréttir