Gleðjumst í Paradís – Salarleiga

Þitt tilefni. Þín Paradís.

Hvort sem tilefnið er starfsmannagleði, barnaafmæli, ráðstefna, einkasýning, gæsa- eða steggjapartý er Bíó Paradís rétti staðurinn til að koma saman og gera sér glaðan dag.

Við bjóðum upp á einstaka aðstöðu í hjarta borgarinnar, þrjá glæsilega bíósali, fyrsta flokks hljóð- og myndgæði og fjölbreytt úrval veitinga. Hjólastólaaðgengi er í öllu húsinu.

Regnboginn, kokteilbarinn okkar, setur svo punktinn yfir i-ið! Barinn er opinn fimmtudaga til laugardaga kl. 19:00 – 01:00 og er einnig í boði fyrir einkasamkvæmi.

SALARLEIGA – VERÐ MEÐ VSK
Salur 1 – 202 sæti – 200.000 kr.
Salur 2 – 128 sæti – 115.000 kr.
Salur 3 – 43 sæti – 60.000 kr.

Verðin miðast við leigu á hefðbundnum opnunartíma Bíó Paradísar. Kostnaður vegna sýningarleyfis getur bæst við þegar um kvikmyndasýningu er að ræða, eftir því hvaða mynd er valin og skilmálum rétthafa.

SENDU FYRIRSPURN UM SALARLEIGU

BÍÓSÝNINGAR & VIÐBURÐIR

BioParadis_Dec2025_035.jpg

Leigðu sal fyrir einkasýningu, ráðstefnu, fyrirlestur, málþing, kynningu eða annan viðburð.

Salir Bíó Paradísar eru búnir fyrsta flokks sýningar- og hljóðbúnaði fyrir kvikmyndir, kynningar og annað sjónrænt efni.

Velja má kvikmynd úr safni Bíó Paradísar, óska eftir annarri mynd eða sýna eigið efni.

PARTÝ & STARFSMANNAGLEÐI

Ertu að skipuleggja starfsmannagleði, vinnustaðahitting eða eitthvað tryllt partý? Í Bíó Paradís er hægt að blanda saman bíói, veitingum og góðri stemningu.

Í Plakatgalleríinu er kokteilbarinn Regnboginn, þar sem hægt er að bóka pláss eða halda einkaviðburð. Einnig er hægt að halda viðburð við Bíóbarinn í anddyrinu.

BARNAAFMÆLI 

Haltu kósý barnaafmæli í sal 3 með einkasýningu og aðstöðu fyrir afmælisboð fyrir allt að 43 gesti. Velja má úr fjölskyldumyndum úr safni Bíó Paradísar eða óska eftir annarri mynd.

Barnaafmæli eru í boði laugardaga og sunnudaga kl. 15:00 og kosta 40.000 kr. með VSK.

 


Ertu með viðburð í huga?

Sendu okkur fyrirspurn og við höfum samband að jafnaði innan tveggja virkra daga.

SENDU FYRIRSPURN UM SALARLEIGU

Einnig má hafa samband við okkur á salarleiga@bioparadis.is

BioParadis_Dec2025_012.jpg