Velkomin á opnunarhátíð Alþjóðlegrar Barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík laugardaginn 26. október kl 14:00 í Bíó Paradís!
Frítt inn og allir velkomnir en nauðsynlegt er að skrá sig. Skráningarhlekkur birtist hér innan skamms.
Opnunarmynd hátíðarinnar í ár ævintýra og fantasíumyndin FLOW, sem vann dómnefndar og áhorfendaverðlaun á Annecy teiknimynda hátíðinni 2024. Myndin er án tals og hentar börnum 9 ára og eldri.
Léttar veitingar fyrir börn í boði Sendinefndar ESB á Íslandi fyrir sýningu!
Dagskrá:
Laugardaginn 26. október í Bíó Paradís
14:00 Opnunarhátíð – léttar veitingar og spurningaleikur með Evrópuþema
14:30 Frumsýning á kvikmyndinni FLOW – myndin er án tals og hentar börnum 9 ára og eldri