Listasmiðja: Svífandi draugar í Bíó Paradís!

Listasmiðja: Svífandi draugar í Bíó Paradís
Sunnudaginn 27. október kl 14:00-17:00

Hrekkjavaka er gengin í garð og Bíó paradís býður börnum og fjölskyldum þeirra í listasmiðju þar sem börn geta útbúið sína eigin drauga!

Komið og látið listræna hæfileika njóta sín í góðum félagsskap. Hægt er að taka draugana með sér heim eða hengja þá upp á staðnum.

Það verður sannkölluð hrekkjavökustemning í Bíó Paradís á Aþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík 26. október – 3. nóvember 2024!