Fréttir

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð 2025!

29/09/2025

Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík hefur fest sig í sessi sem árlegur menningarviðburður barna og unglinga. Verndari hátíðarinnar er Vigdís Finnbogadóttir.

Hlutverk barnakvikmyndahátíðarinnar er að bjóða börnum, unglingum og fjölskyldum þeirra aðgang að áhugaverðum og vönduðum barna- og unglingakvikmyndum víðs vegar að úr heiminum sem annars eru ekki teknar til sýninga á Íslandi. Hátíðin eykur fjölbreytni í kvikmyndaflóru fyrir börn, eflir kvikmyndalæsi barna- og unglinga og er tækifæri fyrir alla fjölskylduna að koma á metnaðarfulla viðburði og njóta dagskrár í hæsta gæðaflokki. 

Þema hátíðarinnar 2025 er stúlkur í aðalhlutverki, en hún verður haldin 25. október – 2. nóvember í Bíó Paradís og í samstarfi við List fyrir alla í skólum á allri landsbyggðinni.

Heimasíða hátíðarinnar hér: 

Skoða fleiri fréttir