Fréttir

Fullt hús á frumsýningu Njósnir, Lygar og Fjölskyldubönd

29/01/2016
Myndin vakti gríðarlega góð viðbrögð áhorfenda sem fylltu bíóhúsið, en margir í salnum áttu ættir að rekja til Ísafjarðar eða könnuðust við tímabilið sem myndin fjallar um. 
Kvikmyndin var sýnd samtímis í Ísafjarðarbíó en kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Felixson verður viðstaddur sýningu þar í kvöld, föstudagskvöld.
Myndin fer í almennar sýningar í Bíó Paradís frá og með kvöldinu í kvöld, 29. janúar en fyrirspurnum hefur ringt inn vegna fyrirhugaðra sýninga. 
 

Heimstyrjöldin síðari, fjölskyldustríð og handtökur. Leyndarmál, þöggun, sögusagnir og rógburður. Kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Felixson rýfur þögnina og varpar ljósi á vel varið leyndarmál fjölskyldu sinnar sem leiddi til skelfilegra atburða sem áttu sér stað á Ísafirði fyrir rúmum 70 árum þegar breska hernámsliðið handtók afa hans, sem var vararæðismaður Breta, og ömmu ásamt 5 öðrum Vestfirðingum og kastaði í bresk fangelsi. „Fortíðin getur varpað löngum skugga og haft flókin áhrif á líf okkar sem fæðumst jafnvel löngu síðar“. Meðal mynda sem Helgi Felixson hefur áður gert, má nefna Guð blessi Ísland.- Myndin er sýnd með enskum texta. 

Smelltu hér til að kaupa miða á tix.is rafrænt og í miðasölu Bíó Paradís

Skoða fleiri fréttir