Allir leikirnir á Heimsmeistaramóti FIFA í knattspyrnu karla verða sýndir í beinni útsendingu í Bíó Paradís frá 11. júní til 19. júlí.
Mótið fer fram í Kanada, Mexíkó og Bandaríkjunum og verður hver einasti leikur sýndur á stóru tjaldi í Bíó Paradís.
Komdu og upplifðu stemninguna, njóttu leikjanna á hvíta tjaldinu og fáðu þér ískaldan á krana!
Aðgangur er ókeypis á alla leikina.
Skoða fleiri fréttir