Fréttir

Doktor Proktor og prumpuduftið – VOD mynd vikunnar!

19/02/2020

Við vitum að eitt gott prump getur valdið alvarlegu hláturskasti en hvað með heimsfrægð?

Lísa og Búi eru að fara að komast að því þökk sé óvenjulegum nágranna þeirra, hinum kexruglaða Doktor Proktor. Hann hefur nefnilega alveg óvart fundið upp öflugasta prumpuduft í heimi og þau þrjú þurfa í sameiningu að koma í veg fyrir að það lendi í röngum höndum!

Doktor Proktor og Prumpuduftið, sem byggð er á samnefndri metsölubók norska rithöfundarins Jo Nesbø, er frábær ævintýra- og gamanmynd sem gerist í heimi þar sem viðurstyggileg furðudýr búa í holræsunum og prump eru nógu öflug til þess að skjóta manni út í geim.

Hægt er að leigja DOKTOR PROKTOR OG PRUMPUDUFTIÐ á VOD leigu Símans og Vodafone með íslensku tali!

Skoða fleiri fréttir