Við bjóðum upp á stórkostlegar leikhússýningar í Bíó Paradís – komdu og vertu með okkur á fremsta bekk!
The Entertainer, sagan gerist á árunum eftir stríð í Bretlandi en um er að ræða nútíma klassík í lifandi uppfærslu Branagh leikshússins (Branagh Theatre Live).
Leikhús með Kenneth Branagh í aðalhlutverki í leikstjórn Rob Ashford, skelltu þér á fremsta bekk í Bíó Paradís! Miðasala hafin hér:
Sýningar
Laugardaginn 19. nóvember kl 20:00
Sunnudaginn 20. nóvember kl 20:00
Laugardaginn 26. nóvember kl 20:00
Sunnudaginn 27. nóvember kl 20:00
Söngleikur í glænýrri uppfærslu Breska Þjóðleikhússins, húmor, kaldhæðni og frábær skemmtun þar sem við færum gestum leikhúsið á fremsta bekk í bíó! Túskildingsóperan synti á móti straumi og stefnum, ristilspeglaði borgaraleg gildi og var annaðhvort lofsungin eða úthrópuð sem argasta klám. Miðasala hafin hér:
Tryggðu þér miða í tæka tíð!
07. jan kl 20:00
08. jan kl 20:00
14. jan kl 20:00
15. jan kl 20:00
Breska Þjóðleikhúsið færir okkur No Man´s Land með þeim Ian McKellen og Patrick Stewart í aðalhlutverkum en um er að ræða upptöku af lifandi uppfærslu sem færir þér verkið upplifun, líkt og þú sitir á fremsta bekk í bestu mögulegu hljóð- og myndgæðum. Miðasala er hafin hér:
Sýningar:
28. janúar kl 20:00
29. janúar kl 20:00
4. febrúar kl 20:00
5. febrúar kl 20:00
Tónlist. Völd. Öfund. Sýningin fjallar um samband Wolfgang Amadeus Mozart og Antonio Salieri, hirðtónskálds austuríska keisarans á síðari hluta átjándu aldar. Með Lucian Msamati (Luther, Game of Thrones, NT Live: The Comedy of Errors) í aðalhlutverki, býður Breska Þjóðleikhúsið upp á ógleymanlega kvöldstund í leikhúsinu. Miðasala er hafin hér:
Sýningar
11. mars kl 20:00
12. mars kl 20:00
„Ég hef enga hæfileika í lífinu“
Nýgift. Leiðist nú þegar. Hedda þráir að vera frjáls …Leikstjórinn Ivo van Hove (A View from the Bridge -Young Vic Theatre) snýr aftur til Breska Þjóðleikhússins með nútímalega uppfærslu af meistaraverki Ibsen með Ruth Wilson (Luther, The Affair, Jane Eyre) í aðalhlutverki í nýrri útgáfu eftir Patrick Marber (Notes on a Scandal, Closer). Miðasala er hafin hér:
Sýningartímar
15. apríl 2017 kl 20:00
16. apríl 2017 kl 20:00
22. apríl 2017 kl 20:00
23. apríl 2017 kl 20:00
Skoða fleiri fréttir