Fréttir

NJÓSNIR, LYGAR OG FJÖLSKYLDUBÖND

27/01/2016

BÍÓ PARADÍS KYNNIR: HEIMILDARMYND UM NJÓSNIR, LYGAR OG FJÖLSKYLDUBÖND Heimstyrjöldin síðari, fjölskyldustríð og handtökur. Leyndarmál, þöggun, sögusagnir og rógburður. Kvikmyndagerðarmaðurinn Helgi Felixson rýfur þögnina og varpar ljósi á vel varið leyndarmál fjölskyldu sinnar sem leiddi til skelfilegra atburða sem áttu sér stað á Ísafirði fyrir rúmum 70 árum þegar breska hernámsliðið handtók afa hans, sem var vararæðismaður Breta, og ömmu ásamt 5 öðrum Vestfirðingum og kastaði í bresk fangelsi. „Fortíðin getur varpað löngum skugga og haft flókin áhrif á líf okkar sem fæðumst jafnvel löngu síðar“. Meðal mynda sem Helgi Felixson hefur áður gert, má nefna Guð blessi Ísland. NJÓSNIR LYGAR OG FJÖLSKYLDUBÖND verður frumsýnd í Bíó Paradís 28. Janúar. Sýnd með enskum texta en myndin er sýnd til 4. febrúar.

Skoða fleiri fréttir