Fréttir

The Golden Glove – VOD mynd vikunnar!

22/01/2020

Svakaleg kvikmynd byggð á sannri sögu fjöldamorðingja sem gekk laus í Hamborg á áttunda áratugnum!

Myndin var tilnefnd til Gullbjarnarins á kvikmyndahátíðinni Berlinale árið 2019.

Hægt er að leigja The Golden Glove (Der Goldene Handschuh) á VOD leigu Símans og Vodafone með íslenskum texta!

Sturlaður, áfengissjúkur og afmyndaður Fritz Honka myrðir vændiskonur undir ljúfum þjóðlagasöng Þýskalands, og ódaunninn úr íbúðinni hans finnst alla leið inn í bíósalinn. Þetta er án efa ógeðslegasta mynd sem þú munt sjá á árinu!

Skoða fleiri fréttir