Fréttir

THE ROOM ÞÁTTTÖKUSÝNING 22. OG 29. JANÚAR

21/01/2016

The Room er þekkt fyrir að vera ein versta mynd sem gerð hefur verið. Hún kom út árið 2003 og var sýnd við einstaklega dræmar viðtökur í Los Angeles (flestir gestir vildu fá endurgreitt áður en hálftími var liðinn) þar sem ungir kvikmyndaáhugamenn rákust á hana og sáu húmorinn í hörmungunum. Orðspor hennar dreifðist og er hún í dag orðin að einni bestu miðnæturskemmtun sem kvikmyndahúsin hafa upp á að bjóða. Þar draga áhorfendur hana sundur og saman í háði á sama tíma og þeir undra sig á því hvernig hægt er að gera svona góða vonda mynd. Það er uppselt 22. jan en enn eru til miðar á aukasýningu þann 29.

Björgvin Franz Gíslason, leikari, heillaðist af költ kvikmyndum þegar hann bjó í Minneapolis. Á einni miðnætursýningunni á The Room varð hann þess heiðurs aðnjótandi að berja augum tvo aðalleikara myndarinnar, Tommy Wiseau og Greg Sestero, þar sem þeir svöruðu spurningum úr sal og árituðu varning fyrir æsta aðdáendur. Gunnar Tómas Kristófersson er kvikmyndafræðingur og doktorsnemi og stundakennari í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands. Hann hefur sérstakan áhuga á költmyndum og sér í lagi The Room og skrifaði MA ritgerð um költmyndir ásamt því að kenna námskeið um þær við HÍ haustið 2015. Björgvin og Gunnar Tómas hafa áður stjórnað þátttökusýningum á The Room, bæði í Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri og munu meðal annars kenna áhorfendum hvað felst í “lifandi” þáttöku kvikmyndinarinnar ásamt því að útskýra í stuttu máli hvað það er sem gerir The Room að költi þar sem velt verður vöngum yfir því hvað í ósköpunum Tommy Wiseau sé.

The Room – besta versta mynd sem gerð hefur verið! Hér er viðburðurinn á Facebook

Hér er hægt að kaupa miða 29. janúar!

Skoða fleiri fréttir