Fréttir

Verðlaunahátíð ungra áhorfenda – Arco

02/12/2025

Bíó Paradís og Kvikmyndamiðstöð Íslands, í samstarfi við Alþjóðlega Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík, sýna kvikmyndina Arco á verðlaunahátíð ungra áhorfenda laugardaginn 17. janúar 2026 kl 15:00.

Eftir myndina verður sýnt frá verðlaununum í beinu streymi í Bíó Paradís.

Þrjár kvikmyndir eru tilnefndar í flokki ungra áhorfenda á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum í janúar 2026. Áhorfendur fá tækifæri til þess kjósa bestu myndina og gegna þannig hlutverki dómnefndar, en atkvæði þeirra ráða sigurvegara verðlaunanna.

Nánar um verðlaunin hér:

Arco er töfrandi ævintýri 10 ára gamals frá fjarlægri framtíð sem ferðast aftur í tímann til ársins 2075 og uppgötvar heiminn í hættu. Í leikstjórn Ugo Bienvenu en myndin var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2025 og vann meðal annars verðlaun sem besta myndin á Annecy 2025.

Myndin er sýnd á frönsku með íslenskum texta.

Frítt inn og öll velkomin!

Facebook viðburður:

 

 

Skoða fleiri fréttir