Adam

Sýningatímar

Engar sýningar

  • Tegund: Drama
  • Leikstjóri: María Sólrún
  • Handritshöfundur: María Sólrún
  • Ár: 2018
  • Lengd: 72 mín
  • Land: Ísland, Þýskaland, Bandaríkin, Mexíkó
  • Aldurshópur: +14
  • Frumsýnd: 14. Apríl 2018
  • Tungumál: Þýska og enska með íslenskum texta
  • Aðalhlutverk: Magnús Maríuson, Floriane Daniel, Eszter Tompa, Julia Kratz, Hans Brückner, Liina Magnea

Listamannahverfið Neukölln í Berlín. Hinn ungi heyrnarlausi ADAM (20) stendur frammi fyrir erfiðustu ákvörðun lífs síns þegar móður hans, alkóhólsjúkri teknótónlistarkonu, er komið fyrir á stofnun með heilabilun. Hún hafði látið hann lofa að hjálpa sér að deyja ef það myndi gerast. Adam hefur engan til að snúa sér til og ákveður að verða að ósk hennar. Eftir að hafa kynnst óléttri stelpu á Tinder er hann ekki lengur viss um að ákvörðunin sé rétt…

María Sólrún leikstýrir og skrifar handritið að Adam og framleiðir myndina ásamt Jim Stark og syni sínum Magnúsi Maríusyni sem jafnframt fer með aðalhlutverkið. Um er að ræða aðra kvikmynd Maríu Sólrúnar í fullri lengd. Fyrri mynd hennar, Jargo frá árinu 2004, var einnig valin til þátttöku á Berlínarhátíðinni 2018. 

Myndin er lokamynd Alþjóðlegrar Barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík 2018, en lokahátíðin fer fram í Bíó Paradís laugardaginn 14. apríl kl 19:00. Adam fer að því loknu í almennar sýningar í Bíó Paradís. Myndin er sýnd með íslenskum texta. 

Framleiðslufyrirtæki/ Framleiðendur: María Sólrún, Jim Stark, Magnús Maríuson

Tónlist: Haraldur Þrastarson, Magnea

English

‘I’m just a normal guy who wants a normal life. At this moment that’s not an option.’ 

 

Aðrar myndir í sýningu