Kvöld eitt við pylsuvagn í finnska Lapplandi kynnist hin partýglaða og skuldbindingafælna Aurora írönskum manni að nafni Darian. Darian þarf að giftast finnskri konu svo að hann og dóttir hans fái hæli í landinu. Aurora kynnir Darian fyrir hverri konunni á fætur annarri en verður um leið æ nánari honum. Þegar hin fullkomna verðandi eiginkona kemur til skjalanna standa Darian og Aurora frammi fyrir tveimur afarkostum: að láta sem þau séu hamingjusöm eða hætta loksins að flýja.
Myndin er tilnefnd til hinna eftirsóttu Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2019. Af því tilefni mun Bíó Paradís sýna allar þær fimm tilnefndu myndir og bjóða upp á Norræna kvikmyndaveislu dagana 15. – 20. október 2019.
AURORA verður sýnd föstudaginn 18. október kl.17:50 – sýnd á frummálinu og með enskum texta!
English
Aurora, a commitment-phobic party animal, meets Iranian Darian one night at a hot-dog stand in Lapland. Darian is running from death and Aurora is running from love. They need each other in order to finally stop running.
This film is nominated for the coveted award, Nordic Council Film Prize 2019. All five nominated films will be shown in Bíó Paradís on October 15th-20th in a special Nordic Film Feast program in cooperation with Nordisk Film & TV Fond.
AURORA will be shown on Friday October 18th @5:50pm – shown in original language and with English subtitles!