Presti í smábæ í Írlandi er hótað lífláti við störf sín og þarf í kjölfarið að takast á við þau myrku öfl sem umlykja hann. Stórkostlega svört kómedía með Brendan Gleeson í aðalhlutverki.
Myndin var sýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni og á Berlínarhátíðinni 2014 þar sem hún hlaut verðlaun í Panorama flokknum. Myndin hefur auk þess verið tilnefnd til fjölda alþjóðlegra verðlauna.
Myndin er sýnd á Hringferð Bíó Paradísar og Evrópustofu dagana 15-26 maí sem unnin er í samstarfi við Northby Northwest – Films on the Fringe. Ókeypis er inn á sýningarnar. Myndin verður sýnd á Akureyri í Sambíóunum þann 23. maí kl. 20:00 og á Selfossi í Selfossbíó þann 26. maí kl. 20:00.
Myndin er sýnd án texta. Bönnuð innan 16 ára.