Ekki missa af hinni margverðlaunuðu söngleikjamynd CHICAGO á geggjaðri Föstudagspartísýningu 20. september kl.20:00 – eins og vanalega verður sjoppan stútfull af sætindum og barinn fljótandi af partíveigum sem að sjálfsögðu má taka með inní salinn!
Sögusvið myndarinnar er Chicago í kringum 1920, áfengið flæðir og djazzbúllur eitra hugi borgarbúa. Roxie Hart (Renée Zellweger) er húsfrú sem hefur stóra drauma um að slá í gegn það sem djazzsöngvari og verða stjórstjarna eins og Velma Kelly (Catherine Zeta-Jones). Kaldhæðni örlaganna leiðir til þess að þær lenda í sama fangelsi, Roxie fyrir að drepa hjásvæfu sína og Velma fyrir að myrða systur sína og eiginmann. Illt er í efni, og einungis einn lögmaður í allri Chicago getur sýknað kvenmorðingja eins og að drekka vatn – Billy Flynn (Richard Gere), konungur réttarsalarins. Velma og Roxie berjast um hylli Flynns og hylli almennings.
English
Don’t miss out on the award-winning musical film CHICAGO on a fabulous Friday Night PARTY Screening September 20th at 20:00 – as usual the kiosk will be filled with sweets and the bar flowing with party-drinks that are of course allowed in the screening hall!
At a time when crimes of passion result in celebrity headlines, nightclub sensation Velma Kelly (Catherine Zeta-Jones) and spotlight-seeking Roxie Hart (Renée Zellweger) both find themselves sharing space on Chicago’s famed Murderess Row! They also share Billy Flynn (Richard Gere), the town’s slickest lawyer with a talent for turning notorious defendants into local legends. But in Chicago, there’s only room for one legend!