“Korter yfir sjö” segir frá verkfallinu 1955 í Reykjavík sem var eitt harðvítugasta verkfall í sögu landsins. Verkalýðsfélögin lögðu áherslu á félagsleg réttindi en pólitískir straumar réðust oft af kalda stríðinu. Reykjavík var sett í herkví, hafnir lokaðar og vegatálmanir settir upp við alla vegi til borgarinnar.
Mynd sem allt áhugafólk um sögu, stjórnmál og menningu má ekki missa af.
Myndin er sýnd með enskum texta.
- ATHUGIÐ! Árskort, klippikort, frímiðar frá Bíó Paradís gilda ekki á þessar sýningar!