Deep Red (Profondo rosso) frá árinu 1975, í leikstjórn meistara gæsahúðarinnar, Dario Argento, er almennt talin ein áhrifamesta og besta myndin í giallo stefnu ítalskra leyndardóms- og hryllingsmynda.
Við fylgjumst með píanóleikaranum Marcus Daly (David Hemmings) sem verður vitni að hrottalegu morði. Hann ákveður að rannsaka málið sjálfur ásamt djarfri blaðakonu en flækist fljótt í banvænan vef dularfulls morðingja í svörtum leðurhönskum...
Sérstök MIÐNÆTURSÝNING á Ítölskum kvikmyndadögum 13. nóvember kl 23:00 í Bíó Paradís!
