Hvar er draumurinn?

Hvar er draumurinn? gerist í Reykjavík snemma á tíunda áratugnum og segir frá Bjarti, rótlausum ungum manni sem á lítið nema vinahóp sinn og skemmtistaðinn Sódóma. Þegar staðurinn stendur frammi fyrir lokun ákveða vinirnir að gera allt sem þeir geta til að bjarga honum.

Á sama tíma bankar ástin upp á úr óvæntri átt þegar Bjartur kynnist Hófí, ungri stúlku sem lifir í allt öðrum veruleika.  Hvar er draumurinn? er söngvamynd byggð á lögum hljómsveitarinnar Sálarinnar hans Jóns míns – tónlistardrifin saga um ást, vináttu, gleði og sorg. 

Sýningatímar


Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Leikstjórn: Höskuldur Þór Jónsson
  • Handrit:
  • Aðalhlutverk: Mikael Kaaber, Sigríður Ragnarsdóttir, Berglind Alda Ástþórsdóttir, Mímir Bjarki Pálmason, Kolbeinn Sveinsson, Hrafnhildur Ingadóttir, Salka Sól Eyfeld
  • Lengd: 104 mín
  • Tungumál: íslenska
  • Texti: Enginn texti
  • Tegund:Romance, Comedy, Music
  • Framleiðsluár: 2026
  • Upprunaland: Ísland