Fru Stella, det er blod! Hin ógleymanlega Stella í orlofi fjallar um Stellu og baráttu hennar við geðilla karla, tryllt börn, alkóhólista, flugmenn, Lionsklúbbinn Kidda, danskar drósir og laxeldi.
Sýnd laugardaginn 6. júní kl 19:00!
Ein ástsælasta íslenska gamanmynd allra tíma með þeim Eddu Björgvinsdóttur, Gesti Jónassyni, Þórhalli Sigurðssyni (Ladda) í aðalhlutverkum.
Bíó Paradís og Kvikmyndasafn Íslands sýna allar íslensku kvikmyndirnar sem teknar voru fyrir í þáttunum Stjörnubíó sem sýndir voru á RUV.




