Home Alone - skynvæn sýning!

Stórkostleg skynvæn jólafjölskyldusýning á HOME ALONE en við ætlum að horfa saman á skynvænni sýningu. 

Laugardaginn 5. desember kl 12:00 á hádegi - sýnd með íslenskum texta!

Myndin fjallar um átta ára gamla Kevin McCallister og ævintýri hans eftir að fjölskylda hans gleymir honum einum heima þegar hún heldur til Frakklands í frí yfir jólin. Þarf Kevin litli meðal annars að glíma við tvo treggáfaða innbrotsþjófa. Ein sú allra besta jólamynd allra tíma, sem er skylda að horfa á fyrir jólin!

Skynvæn sýning þýðir að: 
- ljósin eru hálfkveikt allan tímann
- hljóðið er lægra en venjulega
- það er ekkert hlé
- engar auglýsingar né sýnishorn fyrir mynd
- það má ganga um og hreyfa sig á meðan sýningu stendur
- opið er fram og það má fara fram og hvíla sig á myndinni 
- þeir gestir sem óska þess geta fengið sjónrænar upplýsingar um sýninguna og Bíó Paradís til að undirbúa sig undir viðburðinn

Sýningatímar

  • Lau 05.Des

Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Leikstjórn: Chris Columbus
  • Handrit: John Hughes
  • Aðalhlutverk: John Candy, Macaulay Culkin, Joe Pesci, Daniel Stern
  • Lengd: 103 mín
  • Tungumál: english
  • Texti: Íslenskur
  • Tegund:Comedy, Family
  • Framleiðsluár: 1990
  • Upprunaland: Bandaríkin