Bóndi (1975) – 29 mín
Heimildamynd eftir Þorstein Jónsson. Myndin fjallar um bónda í Seyðisfirði við Ísafjarðardjúp, sem hefur alla tíð búið utan við alfaraleið, án rafmagns og véla. alla tíð, Enginn vegur hefur legið í hreina og ósnerta sveitina sem aðeins fáir hafa augum litið. Verið er að leggja til hans veg sem kemur sér vel þegar hann hættir hokrinu og flytur í þéttbýlið.
Eldsmiðurinn (1982) – 35 mín
Heimildamynd eftir Friðrik Þór Friðriksson. Myndin fjallar um Sigurð einsetumann á áttræðisaldri. Hann er járnsmiður og hugvitsmaður og hefur sjálfur smíðað flest þau verkfæri sem hann notar við járnsmíðarnar. Meðal sköpunarverka hans er til dæmis fyrsta gírhjólið sem smíðað var á Íslandi. Þá hefur hann breytt klukku í dagatal svo fátt eitt sé nefnt.
Frábær dagskrá Bíóteksins sunnudaginn 24. september kl 15:00!