Á þessari einstöku sýningu verður farið yfir tilraunir íslenskra kvikmyndagerðarmanna til að taka upp og sýna myndir af líðandi stundu í kvikmyndahúsum fyrir daga Sjónvarpsins.
Erlendar fréttamyndir voru sýndar á undan venjubundnum kvikmyndasýningum og var draumurinn að veita landsmönnum svipaða þjónustu með íslenskum fréttamyndum.
Sýndar verða myndir af merkilegum viðburðum sem náðust á filmu og í leiðsögn um sýninguna verða skoðaðar tilraunir manna til að stofna fréttamyndaþjónustu á landinu.
*Gunnar Tómas Kristófersson, sérfræðingur á Kvikmyndasafni Íslands, leiðir sýninguna og segir frá því sem fyrir augu ber.