Kvöldstund með…

Skilaboð til Söndru

Kvöldstund með Dunu (Guðnýju Halldórsdóttur) og Kristínu Pálsdóttur.

Við horfum á nýja stafræna endurgerð af Skilaboð til Söndru!

Dagskrá:

17:00 - PUBB KVISS - Konur í íslenskri kvikmyndagerð!

Guðrún Elsa Bragadóttir og Kristín Svava Tómasdóttir stýra kvissinu.

19:00 - Sýning á nýrri stafrænni endurgerð á Skilaboð til Söndru

Að sýninginnu lokinni verður Kvöldstund með kvikmyndagerðarkonunum Guðnýju Halldórsdóttur og Kristínu Pálsdóttur.

Guðrún Elsa og Kristín Svava stýra kvöldstundinni.

Nýútkomin bók þeirra, Duna: Saga kvikmyndagerðarkonu, verður til sölu á viðburðinum, fimmtudaginn 7. nóvember.

Kvöldstund með ... er nýr dagskrárliður í Bíó Paradís þar sem þekkt andlit úr kvikmyndamenningunni eru með áhorfendum á sýningum eða frumsýningum kvikmynda.

Um myndina:

Jónas, miðaldra rithöfundur, fær einstakt tækifæri til að koma sér á kortið þegar hann semur við ítalskt kvikmyndafélag um að skrifa handrit um Snorra Sturluson.

Jónas leigir sér sumarbústað á afskekktum stað til að fá næði til að skrifa og ræður til sín unga konu, Söndru, til að sjá um sig. Hann vill með því skapa sér fullkomna aðstöðu til að skrifa. En það fer ekki eins og hann ætlar.

Sýningatímar

  • Fim 07.Nóv

Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Leikstjórn: Kristín Pálsdóttir
  • Handrit: Guðný Halldórsdóttir, Kristín Pálsdóttir, Árni Þórarinsson, Jökull Jakobsson
  • Aðalhlutverk: Bessi Bjarnason, Aðalsteinn Bergdal, Ásdís Thoroddsen, Bryndís Schram, Rósa Ingólfsdóttir, Andrés Sigurvinsson, Benedikt Árnason, Þorlákur Kristinsson, Bubbi Morthens, Björn Br. Björnsson, Birna Þórðardóttir, Elías Mar, Guðbjörg Thoroddsen, Birgir Sigurðsson, Jon Laxdal
  • Lengd: 84 mín
  • Tungumál: Íslenska
  • Texti:
  • Tegund:Comedy
  • Framleiðsluár: 1983
  • Upprunaland: Ísland

Aðrar myndir í sýningu