Barnakvikmyndahátíð 2024

STUTTMYNDIR EFTIR NÝJA ÍSLENSKA HREYFIMYNDAHÖFUNDA – SPURT & SVARAÐ!

Bíó Paradís og Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík bjóða á sýningu á hreyfi-stuttmyndum eftir íslenska höfunda miðvikudaginn 30. október kl 17:00. Frítt inn og allir velkomnir!

Á eftir sýningunni verður boðið upp á spurt & svarað með höfundunum myndanna þar sem þær gefa innsýn inn í ferlið á bak við hreyfimyndagerð og notkun teikni- og hreyfimynda til þess að til þess að tjá fjölbreyttar frásagnir.

Frítt inn og allir velkomnir en nauðsynlegt er að skrá sig.

Myndir:

Alda Ægisdóttir Soulmates 10 mín

Í heim útsaumaðra blóma og skordýra, eru tveir elskhugar aðskildir af yfirnáttúrulegum öflum.

Fanny Sissoko Á yfirborðinu 4 mín

Ada, ung kona af erlendum uppruna, fer að synda í íslenskum sjó og hugleiðir það að ala upp barn í framandi landi.

Rakel Andrésdóttir Kirsuberjatómatar 3 mín

Stutt teiknimynd um sumarið sem ég var send í sveit til þess að týna og flokka kirsuberjatómata.

Una Lorenzen Story of Nothing 3 mín

Heimspekilegar spurningar vakna þegar að Eitthvað reynir að finna Ekkert. Ferðalag sem gæti breyst í hættuför.

Una Lorenzen Rímur 6 mín

Náttúra og loftslagsbreytingar persónugerast með jarðskjálftum, eldfjöllum, bráðnun snjós og rísandi sjó.

Sýningatímar

  • Mið 30.Okt

Mynd þessi er leyfð öllum aldurshópum

  • Leikstjórn:
  • Handrit:
  • Aðalhlutverk:
  • Lengd: 46 mín
  • Tungumál: To Be Advised
  • Texti:
  • Tegund:Shorts
  • Framleiðsluár: 2024
  • Upprunaland: Ísland