Kvikmyndasafn Íslands hefur gert upp og fært á stafrænt form kvikmyndina Skammdegi í leikstjórn Þráins Bertelssonar frá árinu 1985.
Ung ekkja, sem búsett hefur verið erlendis lengi, hefur erft helming eignar á vestuhluta landsins en mágur hennar á þegar hinn helminginn. Hún er í slagtogi með ríkum manni sem býr ekki langt frá landareigninni og hefur áhuga á að kaupa hana. Hún reiðubúin að beita öllum brögðum sem til þarf til að fá mág sinn til að selja. Brátt finnst henni að einhver ókunnug persóna sitji um fyrir sér og líf hennar sé í hættu.
Sýnd sunnudaginn 25. janúar 2026 í Bíótekinu.




