Páll er lífsglaður ungur maður sem á framtíðina fyrir sér. Þegar fer að bera á einkennum geðveiki missir Páll tökin á lífinu og ekkert blasir við nema innilokuð tilvera hins geðsjúka. Á Kleppi kynnist Páll Óla bítli sem heldur að hann hafi samið öll Bítlalögin, Viktori sem telur sig stundum vera Hitler og Pétri sem fór yfir um á sýru. Englar alheimsins er bæði átakanleg og meinfyndin mynd, angurværar tilfinningar og harður veruleikinn tvinnast saman en hið broslega er ávallt skammt undan.
Sýnd laugardaginn 12. september kl 19:00!
Bíó Paradís og Kvikmyndasafn Íslands sýna allar íslensku kvikmyndirnar sem teknar voru fyrir í þáttunum Stjörnubíó sem sýndir voru á RUV.
Kvikmynd eftir Friðrik Þór Friðriksson sem byggð er á sögu Einars Más Guðmundssonar.



