Child Eater er eins konar ástarbréf til hryllingsmynda níunda og tíunda áratugarins og segir frá barnfóstrunni Helen og þeim ógöngum sem hún lendir í þegar Lucas litli hverfur sporlaust úr rúminu sínu eina nótt.
Hún rekur slóð hans djúpt inn í skóglendi þar sem Robert nokkur Bowery er sagður hnupla börnum til þess að éta úr þeim augun. Í kjölfarið fer af stað martraðakennd og óhugnanleg atburðarrás þar sem enginn er óhultur, hvorki fullorðnir né börn.
Á undan myndinni verður sýnd samnefnd stuttmynd Erlings sem var kveikjan að myndinni í fullri lengd. Stuttmyndin var sýnd á fjölda kvikmyndahátíða, þar á meðal SXSW.
Erlingur Óttar Thoroddsen verður viðstaddur sýninguna ásamt tónskáldi myndarinnar, Einari Sv. Tryggvasyni, og munu þeir svara spurningum úr sal að sýningu lokinni - og skála á Regnbogabarnum fyrir þá gesti sem vilja staldra við aðeins lengur.
English
A simple night of babysitting takes a horrifying turn when Helen realizes the boogeyman really is in little Lucas' closet.




