Sýningar á tilnefndum kvikmyndum til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2026 fara fram í Bíó Paradís dagana 15. til 18. október 2026 í samstarfi við Stockfish kvikmynda- og bransahátíð.
Yfir helgina verða einnig erlendir gestir, Q&A, viðburðir og pallborð um stöðu kvikmyndagerðar á Norðurlöndum.
6-miða klippikort Bíó Paradís gildir á allar sýningar Norrænu kvikmyndaveislunnar en einnig er hægt að kaupa staka miða á sýningarnar.
Kynnið ykkur dagskránna hér að neðan: