Hin 11 ára kraftmikla en auðtrúa Birta tekur málin í sínar hendur með ævintýralegum hætti þegar hún heyrir móður sína segja í hálfkæringi að það verði engin jól vegna blankheita.
Myndin skartar tveimur ungum leikkonum, þeim Kristín Erlu Pétursdóttur og Margrét Júlíu Reynisdóttur, ásamt Sölku Sól Eyfeld í aðalhlutverkum. Kristín Erla hlaut nýverið DIAMANT verðlaunin sem besta unga leikkonan á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni Schlingel í Þýskalandi.
Myndin er FRUMSÝND með rauðum dregli á Alþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík 2021 og er jafnframt LOKAMYND hátíðarinnar.