Kvikmynd eftir einn merkilegasta leikstjóra Indlands, Satyajit Ray sem hlaut mörg verðlaun á sínum ferli, meðal annars Óskarsverðlaunin fyrir ævistarfið árið 1992. Myndin er gerð eftir metsölubók og fjallar um einmana eiginkonu en myndin hlaut fjölda verðlauna á kvikmyndahátíðinni í Berlín 1965, meðal annars fyrir bestu leikstjórn.
Þessi nýja og stórkostlega endurgerð kvikmyndarinnar var valin á kvikmyndahátíðina í Cannes 2013 og hlaut þar einnig feiknar góðar viðtökur. Haft er eftir leikstjóranum sjálfum að þessi kvikmynd hafi verið hans besta verk.
Sendiráð Indlands heldur kynningu á viðburðinum og býður upp á léttar veitingar og spjall
við áhorfendur.
Sýnd í BÍÓTEKINU 11. september kl 19:10.
English
The lonely wife of a newspaper editor falls in love with her visiting cousin-in-law, who shares her love for literature.
The Indian Embassy in Iceland welcomes everyone to this event. Light refreshments and talk with the audience.
Screened September 11th at 7:10 PM.