Barnakvikmyndahátíð 2025 – SKÓLASÝNINGAR

Bíó Paradís, í samstarfi við List fyrir alla, bjóða upp á skólasýningar fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri á Alþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík dagana 25. október – 2. nóvember 2025.

Í Bíó Paradís verður boðið upp skólasýningar á fyrir öll börn- og unglinga á höfuðborgarsvæðinu að loknu vetrarfríi dagana 29. – 31. október 2025.

Myndirnar og kennsluefnið verður aðgengilegt á streymisveitu Bíó Paradís, Heimabíó Paradís, á meðan að á hátíðinni stendur frá 25. október – 2. nóvember 2024 fyrir alla leik- og grunnskóla á landsbyggðinni.

Allar sýningarnar eru ókeypis og aðgengilegar öllum aldurshópum.

Sýningartímar í Bíó Paradís 29.-31. október

 Miðvikudagur 29. október 

10:00 Salur 1 Kisi (Flow) (82 mín) 2.-5. bekkur

10:00 Salur 2 Hvar er Anne Frank (96 mín) 4.-10. bekkur  – FULLBÓKAР

10:00 Salur 3 Jólaævintýri dýranna (72 mín) Leikskóli, 1.-4. bekkur 

 

Fimmtudagur 30. október 

10:00 Salur 1 Hvar er Anne Frank (96 mín) 4.-10. bekkur  – FULLBÓKAР

10:00 Salur 2 Dansdrottingin (89 mín) 4.-6. bekkur

10:30 Salur 3 Apastjarnan (74 min) Leikskóli, 1.-4. bekkur

 

13:00 Salur 1 Kisi (Flow) (82 mín) 2.-5. bekkur

13:30 Salur 2 SEXAN (75 mín) 7. bekkur

13:00 Salur 3 Hjartasteinn (129 mín) 6.- 9. bekkur

 

Föstudagur 31. október 

10:00 Salur 1 Jólaævintýri dýranna (72 mín) Leikskóli, 1.-4. bekkur

10:00 Salur 2 Kisi (Flow) (82 mín) 2.-5. bekkur

10:30 Salur 3 Hvar er Anne Frank (96 mín) 4.-10. bekkur

 

13:00 Salur 1 Holy Cow (88 mín) 8.-10. bekkur

13:00 Salur 2 Þrestir (99 mín) 7.- 10. bekkur

13:30 Salur 3 Dansdrottningin (89 mín)  4.-6. bekkur

 

Upplýsingar um kvikmyndir og sýningartíma í Bíó Paradís má finna hér fyrir neðan:

 

Kvikmyndir

Jólaævintýri dýranna 

Leikskóli, 1.-4. bekkur 

Caroline Attia, Camille Alméras, Ceylan Beyoğlu, Olesya Shchukina, Natalia Chernysheva, Haruna Kishi | Án tals | 2024 | 1h 12m

Hugljúfar og dásamlegar sögur, töfrandi ævintýri um norðurslóðir þar sem norðurljósin tindra!

Gleði og töfrar jólanna fléttast saman í fimm sögum eftir fimm evrópska kvenleikstjóra!

Myndin er talsett á íslensku, það er lítið talað í myndinni en hún hentar yngsta aldurshópnum.

Apastjarnan 

Leikskóli, 1.-4. bekkur 

Linda Hambäck | Íslensk talsetning | 2021 | 1h 14m

Jonna er ung munaðarlaus stúlka. Einn daginn kemur Górilla á heimilið þar sem hún býr og vill ættleiða hana. En það tekur smá tíma fyrir Jonnu að venjast nýju móður sinni en lífið verður gott. Þangað til að yfirvöld ógna nýju fjölskyldunni…

Hjartnæm saga sem tilnefnd var til Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna 2021 sem besta teiknimyndin. Myndin er talsett á íslensku.

Kisi (Flow) 

2.-5. bekkur

Gints Zilbalodis | Ekkert tal | 2024 | 1h 22m

Kisi er einmana dýr og eftir mikið flóð, finnur hann skjól á báti sem er byggður af allskonar dýrum og upphefst ævintýraferð þar sem samvinna dýranna skiptir öllu máli. Myndin hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda og hlaut dómnefndar- og áhorfendaverðlaunin á Annecy kvikmyndahátíðinni 2024.

Myndin vann sem besta teiknimyndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum 2024. Myndin hlaut Golden Globe verðlaunin 2025 sem besta teiknimyndin. Myndin hlaut Óskarsverðlaunin sem besta teiknimyndin árið 2025.

Dansdrottningin 

4.-6. bekkur 

Aurora Langaas Gossé | Norska með íslenskum texta | 2023 | 1h 29m

Mina er 12 ára. Henni bregður í brún þegar frægur götudansari byrjar í skólanum hennar. Hún ákveður í kjölfarið að taka þátt í áheyrnaprufum fyrir danshóp til þess að ganga í augun á nýja stráknum. Eina vandamálið er að hún kann ekki að dansa!

Mynd sem sló í gegn á kvikmyndahátíðinni Berlinale sem vann hug og hjörtu áhorfenda og opnunarmynd Alþjóðlegrar Barnakvikmyndahátíðar í Reykjavík árið 2023. 

Hvar er Anne Frank 

4.-10. bekkur 

Ari Folman | Enska með íslenskum texta | 2021 | 1h 36m

Byggð á dagbók Anne Frank teflir Ari Folman hér fram kvikmynd byggða á sögu hennar þar sem sögufrásögnin hefur hlotið gríðarlega athygli, en leikstjórinn er þekktastur fyrir kvikmynd sína Waltz with Bashir sem hann hlaut Óskarsverðlaunin fyrir sem bestu erlendu myndina.

Í myndinni lifnar Kittý við, ímyndaða stúlkan sem Anne skrifaði til í dagbókum sínum. Heimur Anne Frank á hvíta tjaldinu, kvikmynd sem þú vilt ekki missa af.

Hjartasteinn 

6.- 9. bekkur 

Guðmundur Arnar Guðmundsson | Íslenska | 2016 | 2h 9m 

Hjartasteinn gerist yfir sumar í litlu sjávarþorpi á Íslandi. Þetta er örlagarík þroskasaga sem fjallar um sterka vináttu tveggja drengja sem eru að taka sín fyrstu skref inn í unglingsárin og uppgötva ástina.

Hjartasteinn er fyrsta kvikmynd Guðmundar Arnars Guðmundssonar í fullri lengd. Guðmundur hefur getið sér góðs orðs sem leikstjóri og handritshöfundur á undanförnum árum fyrir margverðlaunaðar stuttmyndir sínar. Þar hefur Hvalfjörður reynst vera sérlega sigursæl, enda unnið til um 50 verðlauna á kvikmyndahátíðum víðs vegar um heiminn, þar á meðal sérstök dómnefndarverðlaun í aðalkeppni kvikmyndahátíðarinnar í Cannes árið 2013.

SEXAN

7. bekkur 

Sexan er jafningjafræðsluverkefni sem ætlað er að fræða ungt fólk um birtingarmyndir stafræns ofbeldis. Viðfangsefni stuttmyndanna er tæling, nektarmynd, samþykki eða slagsmál ungmenna. Sýndar verða vinningsmyndir síðustu ára ásamt fræðslu um netnotkun ungmenna, ábyrga frásögn, og umfjöllun um sjálfsvíg. 

Þrestir 

 7.- 10. bekkur

Rúnar Rúnarsson | Íslenska | 2015 | 1h 39m 

Þrestir er ljóðrænt drama sem fjallar um Ara, 16 ára pilt, sem sendur er á æskustöðvarnar vestur á firði til að dvelja hjá föður sínum um tíma. Samband hans við föður sinn er erfitt og margt hefur breyst í plássinu þar sem hann ólst upp. Ari endurnýjar kynnin við Láru, æskuvinkonu sína og þau laðast að hvort öðru.

Holy Cow 

8.-10. bekkur 

Louise Courvoisier | Franska með íslenskum texta | 2024 | 1h 28m

Við fylgjum hinum áhyggjulausa unglingi Totone, sem eyðir dögum sínum í dans og drykkju. Þegar hann þarf skyndilega að sjá fyrir sjö ára systur sinni, neyðist hann til að taka ábyrgð.

Í leit að tekjum beinir hann allri orku sinni í að framleiða úrvals comté-ost með það að markmiði að vinna til peningaverðlauna í ostasamkeppni. 

Áhrifamikil kvikmynd sem frumsýnd var á kvikmyndahátíðinni Cannes þar sem hún hreppi Ungmennaverðlaunin (Youth Award) árið 2024 ásamt því að vinna hin virtu César verðlaun fyrir bestu fyrstu mynd í fullri lengd.