Bíó Paradís, ásamt Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, Norræna Húsinu og danska menningarmálaráðuneytinu efnir til málþings og kvikmyndasýninga dagana 25. – 27. október nk.
Opnunarmynd dagskránnar verður Hinn seki / Den Skyldige eftir Gustav Möller þann 25. október kl 20:00. Aðalleikari myndarinnar, Jacob Cedergren verður viðstaddur frumsýninguna.
Að lokinni frumsýningu, fer myndin Hinn seki / Den Skyldige í almennar sýningar í Bíó Paradís.
Einnig sýnir Bíó Paradís valdar myndir í tengslum við málþing DÖNSKU NÝBYLGJUNNAR, kvikmyndina Cutterhead eftir Rasmus Kloster Bro – ásamt spurt og svarað eftir sýninguna föstudaginn 26. október kl 20:00, og kvikmyndina Neon Heart, með spurt og svarað með Laurits Flensted, leikstjóra og Julie Walenciak, framleiðanda myndarinnar á laugardeginum 27. október kl 18:00.
Dagskrá í Bíó Paradís:
25.10 kl 20: DEN SKYLDIGE / THE GUILTY. Frumsýning. Jacob Cedergren, aðalleikari myndarinnar verður viðstaddur
26.10 kl 20: CUTTERHEAD. Q&A eftir sýningu
27.10 kl 18: NEON HEART. Q&A eftir sýningu
Myndirnar eru allar sýndar á frummálinu með enskum texta.
Norræna Húsið – 26.október – kl 14-18
Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur og Norræna Húsið efna til málþings um nýsköpun í danska kvikmyndageiranum í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands.
Það vakti athygli þegar kvikmyndin “Vetrarbræður” eftir Hlyn Pálmason sópaði að sér öllum helstu verðlaunum í Danmörku fyrr á þessu ári: Níu Robert verðlaun og tvenn Bodil verðlaun. Kvikmyndin er styrkt af New Danish Screen (undirdeild Dönsku Kvikmyndamiðstöðvarinnar) sem hefur það hlutverk að þróa ungt hæfileikafólk og stuðla að nýsköpun í kvikmyndageiranum. Hjá New Danish Screen fær kvikmyndagerðarfólk tækifæri til að framleiða “low-budget” kvikmyndir, þar sem fjárhagslegar takmarkanir eru ekki aðþrengjandi skilyrði, heldur aðferð til að hámarka sköpun og frelsi. Árangurinn hefur verið stórbrotinn og sjaldan hefur listræn gróska verið jafn mikil í danskri kvikmyndagerð og um þessar mundir. Hver kvikmyndin á fætur annarri hefur farið sigurför um heiminn og nýlega var “Den Skyldige” (The Guilty”) valin sem framlag Danmerkur til Óskarsverðlaunanna. Á málþinginu gefst áhugasömum kostur á að kynnast þessu brautryðjendastarfi. Mette Damgaard-Sørensen, forstöðumaður New Danish Screen, mun halda erindi um hugmyndafræði og aðferðir sjóðsins og einnig munu leikstjórar og framleiðendur kvikmyndanna “Cutterhead” og “Neon Heart” fara ofan í saumana á þróun og framkvæmd verka sinna. Umsjónarmaður málþingsins er Dagur Kári, leikstjóri og handritshöfundur.
Samhliða málþinginu mun Bíó Paradís sýna umræddar kvikmyndir.
Dagskrá í Norræna Húsinu, föstudaginn 26.10.2018
14:00-15:00 – Mette Damgaard-Sørensen, framkvæmdastjóri New Danish Screen
15:00-15:15 – Hlé
15:15-16:30 – “Cutterhead” – Rasmus Kloster Bro, leikstjóri
16:30-16:45 – Hlé
16:45-18:00 – “Neon Heart” – Laurits Flensted, leikstjóri og Julie Walenciak, framleiðandi
Skoða fleiri fréttir